Laugardælabrúin

Laugardælabrúin

Nafnið á nýju brúnni sem er í byggingu fyrir ofan Ölfusárbrú á að heita Laugardælabrúin.

Points

Nafnið Laugardælabrúin hefur ekki bara landfærðilega skírskotun heldur líka sögulega. Brúin liggur frá Laugardælalandi yfir Efri Laugardælaeyju og út í Helliskógarlandið. Aðalburðarvirki brúarinnar, um 60 m hár turn, sem stendur á Efri-Laugardælaeyju. Samkvæmt heimildum frá 1700 var í Laugardælum ein af þremur lögferjum í Árnessýslu. Þá höfðar nafnið líka til Laugardælakirkju í landi Laugardæla, en samkvæmt heimildum þá er talið að kirkja hafi verið þar allt frá fornkristni eða í um 1000 ár.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information