Gangstéttin meðfram Hofakri yfir á Akrabraut liggur nú yfir Hofakur um 40 metrum áður en komið er að hringtorginu á Akrabraut. Fyrir þá sem eiga erindi austur Akrabraut og koma t.d. af strætó þurfa því að fara tvisvar yfir Hofakur áður en komið er að austurhluta Akrabrautar. Þetta er ekki beint fallið til að stuðla að umferðaröryggi.
Þessi hugmynd er á framkvæmdaáætlun Garðabæjar og fer því ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation