Náttúruperlan við Arnarnesvog. Garðabær beiti sér fyrir því að í húsnæði veitingastaðarins Sjáland komi fjölskylduvæn starfsemi þannig að svæðið haldi áfram að vera sú paradís sem verið hefur og hið fjölskrúðuga fuglalíf sem verið hefur á voginum raskist ekki. Að ekki verður heimilað að opnuð verði líkamsræktarstöð við voginn með öllu því ónæði sem því fylgir.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation