Ekki World Class á þessum dásamlega fallega stað. Umferð um svæðið er nægilega mikil eins og er og engin þörf á aukningu í návist skólabygginga á svæðinu. Nær að samverustaður í nærumhverfi sé með öðru móti/hætti auk þess sem líkamsræktarstöðvar eru fjölmargar allt um kring.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
Algerlega ótækt að ætla að vera með stóra líkamsræktarstöð á þessu fallega svæði. Garðbæingar eiga að hafa fullt aðgengi að svæðinu óspilltu án þess að þar verði kraðak af fólki, merkingum á húsi og tilheyrandii umferð. Nægilega erfitt getur verið að komast út úr hverfinu á annatíma og ekki skánar það ef af þessum breytingum yrði. Stór hluti af því að vera íbúi í Garðabæ er að hafa aðgang að óspilltri náttúru sbr. Heiðmörkina og geta notið gönguferða við voginn og aðgengi að ylströndinni.
Alls ekki meira umfang á þessum stað. Umferðin er orðin næg þarna. Alls ekki leyfa hugmyndirnar sem eru í gangi
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation