Fermingarbörn fari inná hjúkrunarheimili og bjóða til hátíðarmáltíðar fyrir eldriborgara og eða halda hátíðarkvöldverð í íþróttahúsi/sal. Með því tengjast saman kynslóðir þar sem þau yngri þjóna og sýna þeim eldri þakklæti. Hin eldri njóta og fá að sjá yngri kynslóð blómstra sem veglegir afkomendur. Góðborgarakvöld yrði í boði Garðabæjar framkvæmt af áttundu bekkingum fyrir alla eldriborgara sem kjósa að þiggja.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation