Núverandi ljósastýring á Arnarsneshæð þarf að bæta. Í dag eru ljósin allt of stutt frá Arnarnesvegi austur yfir brú. Eins eru ljósin of stutt frá rampi til vinstri inn á Arnarnesið, bara fyrir einn bíl í einu. Svo mætti breikka Arnarnesveginn í vesturátt þannig að íbúar á Arnarnesi þyrftu ekki að bíða í langri einbreiðri röð á eftir bílum sem taka vinstri beygju suður Hafnarfjarðaveg. Eins að leyfa strax akstur inn á Arnarnesið samhliða umferð á móti frá Arnarnesi.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation