Vöntun er á bílastæðum við Stórás/Eskiás í Gbæ. Tillagan gengur út að að útfæra bílastæði fyrir framan hjá Stórás 9 og 11 og upp að Breiðás 10. Grænt ónotað svæði er þarna sem er ekki notað og mikið lagt á grasið og því væri best að setja þar bílastæði.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
Þetta er mjög nauðsynleg aðgerð enda vegurinn við stórás/eskiás stórhættulegur
Mér þykir mikilvægara að endurhugsa þessa opnun á Stórás niður á Lyngás, allt of mikil umferð þarna á þröngri götu, loka þessu aftur eða hafa þetta einstefnu. Einmitt þessi grasblettur var t.d. mikið notaður af krökkum að renna sér á sleða á veturnar fyrir þessa breytingu.
Ég er hvorki með eða á móti endurlokun á Stóràs eins og nefnt er hér sem “Á móti” en óhàð því þá vantar bílastæði almennt fyrir íbúa í Stórás og Eskiás því íbúar í Stórás leggja upp á köntum og grasblettum ítrekað eða aðilar þeim tengdir.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation