
Að hafa eitt stórt almennilegt leiksvæði í miðjum dal, t.d. nærri skátahúsinu, með flottum kastala til að klifra og renna sér. Svipað og sjóræningaskipið í Fjölskyldugarðinum eða Ævintýraland Ullarbrekku Mosó. Hægt að mynda mjúka litríka hóla úr höggdempandi efni í kring fyrir ungabörn að skríða og bekki fyrir barnavagnaforeldra. Aparóla nærri og/eða klifurgrind væri ekki verra.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation