
Leggja malbikaða göngustíga með lýsingu frá Dimmuhvarfi að opna svæðinu og Melahvarfi. Lagning þessa göngustíga mun stytta vegalengd barna í Dimmuhvarfi sem ganga í Vatnsendaskóla talsvert og auka öryggi þeirra. Gert er ráð fyrir þessum göngustígum í deiliskipulagi.
Það er nokkrum metrum lengra að fara upp Dimmuhvarfið og þaðan í skólann. Það eru örfáir krakkar sem myndu nota sér þennan stíg í skólann því hverfið endar þarna í Dimmuhvarfi.
Styttir vegalengd í gegnum hverfið að Vatnsendaskóla og eykur öryggi skólabarna sem annars mundu ganga meðfram Fornahvarfi þar sem engir göngustígar eru.
Börn geta stokkið yfir þetta svæði á leið í skóla eða nýtt þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla sem eru nánast jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Prýðisgóð gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði.
Malbikaðir og upplýstir göngustígar eru í næsta nágrenni sem tengja Dimmu- og Melahvarf við Vatnsendaskóla og leiksvæði, óþarfi að leggja í kostnað við nýjan stíg sem nýtist fáum. Þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla eru jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Prýðisgóð gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði
Börn geta hæglega hoppað yfir opna svæðið bæði á leið í skóla og þegar hlaupa á til vina eða slíkt. Barn í Dimmuhvarfi 5 gerði það amk til margra ára og varð ekki meint af. Þaðan er svo greið leið á malbikuðum og upplýstum stígum alla leið upp í Vatnsendaskóla. Fyrir utan er göngustígur ofar í Dimmuhvarfi sem tengir svæðið ágætlega. Þar utan er auðvitað stórundarlegt að ekki sé göngustígur um Fornahvarf í ljósi þess fjölda sem þar fer hjólandi og gangandi daglega.
Mörg brýnni verkefni eru í neðri Hvörfum sem þarfnast skoðunar og kalla á úrbætur. Eitt af þeim er t.d. Fornahvarf sem er án göngustíga eða gangstétta sem er stórundarlegt í ljósi þess hvað vatnið hefur mikið aðdráttarafl og þann gríðarlega fjölda akandi, gangandi og hjólandi fólks sem þar fer um daglega.
Einnig er mikill aukning umferðar af gangandi sem og hjólandi fólki í Fornahvarfi, fólk sem ætlar að komast áfram út úr hverfinu fram hjá Skyggni, en lendir í vandræðum, þar sem að það er engin tenging áfram nema fyrir hestamenn. Vegurinn endar á reiðvegi meðfram Breiðholtsbrautinni en þar er engin lausn hvorki fyrir gangandi né hjólandi vegfarendur. Þarna getur skapast mikil hætta fyrir alla aðila. Gæti verið gott að setja upp merkingu við Dimmuhvarf um að þar sé gönguleiðin út úr hverfinu
Mörg brýnni verkefni eru í neðri Hvörfum sem þarfnast skoðunar og kalla á úrbætur. Eitt af þeim er t.d. Fornahvarf sem er án göngustíga eða gangstétta sem er stórundarlegt í ljósi þess hvað vatnið hefur mikið aðdráttarafl og þann gríðarlega fjölda akandi, gangandi og hjólandi fólks sem þar fer um daglega.
Að opna á aðgengi almennings að þessu svæði vekur hjá okkur ugg um hópamyndanir, slæma umgengni við umhverfið og ónæði, meðal annars af völdum vélknúinna ökutækja.
Göngustígagerð á milli lóða við Dimmuhvarf 7b og 9/9a er erfið í framkvæmd, hæðamunur er mikill og óljóst hvernig hægt er að ganga frá stíg án þess að raska lóðum nærliggjandi húsa og skapa hættu vegna hæðarmunar á lóðum. Einnig eru stór tré sem þyrfti líklega að fella við slíka stígagerð.
Mjög góður upplýstur göngustígur er þegar til staðar sem tengir Dimmuhvarf við stígakerfi að Vatnsendaskóla og leiksvæði. Þessi stígur er með vetrarþjónustu og malbikaður alla leið að skólanum. https://bit.ly/3sEtS6D
Nýr göngustígur sem myndi liggja á milli Dimmuhvarfs 7b og 9/9a myndi eingöngu stytta gönguleiðina um ca 90 metra og mun ekki vera malbikaður, mokaður að vetra né er upplýstur alla leið að skólanum. https://bit.ly/2MEiNn2
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation