Leikvöllur og frístundasvæði.

Leikvöllur og frístundasvæði.

Gera leikvöll með rólum og rennibraut. Einnig brekku sem börn geta notað til að renna sér á sleða að vetri til. Það vantar leiksvæði fyrir börn í hverfinu.

Points

Það vantar leiksvæði fyrir börn i hverfinu. Þetta svæði væri tilvalið fyrir leikvöll og frístundasvæði en það er í órækt eins og staðan er núna.

Svæðið er bara alls ekki í órækt og hefur verið vel hirt í áratugi af íbúum í kring.

Svæðið er ekki í "órækt" heldur er það "ósnert" sem er nú bara heilmikils virði á þessum síðustu tímum! Það er fullt af leiksvæðum í hverfinu sem börn hafa nú bara gott af að rölta á, enda vantar börn hreyfingu 😃

Það eru fjölmörg önnur svæði í hverfinu sem myndu henta betur fyrir sleðabrekku en þetta tiltekna svæði. Þar sem svæðið hallar í átt að lóðum við Dimmuhvarf og hæðarmunur er mjög mikill þyrfti að girða af þær lóðir til að skapa ekki hættu fyrir börn við leiksvæði ef útbúa á sleðabrekku eða leiksvæði.

Svæðið er bara alls ekki í órækt. Það er ósnert, vel hirt og löng hefð fyrir að svæðið sé nýtt af íbúum í sátt og samlyndi við nærliggjandi hús. Það vantar heldur ekki leikvöll í hverfið, enda prýðisgóður leikvöllur örstutt frá, staðsettur milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs.

Leikvöllur er góð hugmynd. Það vantar leiðskvæði fyrir börnin.

Grillaðstaða er ekki góð hugmynd vegna nálægðar við hús. Hér eru timburhús og hesthús í nálægð við svæðið. Sleðabrekka hentar ekki, það er nógu mikið álag á hæðamismuninn, svo ekki er hægt að bæta á það.

Mjög gott leiksvæði við Grundarhvarf og Brekkuhvarf er örstutt frá þessu svæði. Sjá mynd hér af leikvellinum: https://bit.ly/2NEr4rF

Hugmynd um eldstæði eða grillaðstöðu getur skapað eldhættu en í nágrenninu er mikið af timburhúsum. Flestir eru með grill í eigin görðum og engin sérstök þörf fyrir sameiginlegt grillsvæði. Umgengni og sóðaskapur er einnig áhyggjuefni.

Svæðið er alls ekki stórt og við setjum stórt spurningamerki við að sleðabrekka komist hreinlega fyrir þarna. Það eru fjölmörg önnur svæði í hverfinu sem myndu henta betur en þetta tiltekna svæði. Þar sem svæðið hallar í átt að lóðum við Dimmuhvarf og hæðarmunur er mjög mikill þyrfti að girða af þær lóðir til að skapa ekki hættu fyrir börn við leiksvæði ef útbúa á sleðabrekku, boltavelli eða annað.

Svæðið er alls ekki stórt og við setjum stórt spurningamerki við að sleðabrekka komist hreinlega fyrir þarna. Það eru fjölmörg önnur svæði í hverfinu sem myndu henta betur en þetta tiltekna svæði. Þar sem svæðið hallar í átt að lóðum við Dimmuhvarf og hæðarmunur er mjög mikill þyrfti að girða af þær lóðir til að skapa ekki hættu fyrir börn við leiksvæði ef útbúa á sleðabrekku, boltavelli eða annað.

Það er mjög góður leikvöllur stutt frá eða á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs. Rétt rúmlega 200m frá efstu húsum Dimmuhvarfs. Malbikaðir göngustígar alla leið.

Mjög gott leiksvæði við Grundarhvarf og Brekkuhvarf er örstutt frá þessu svæði. Sjá kort hér: https://bit.ly/3bLqS1M

Það eru mörg önnur svæði í hverfinu sem geta nýst til útivistar án þess að opna á aðgengi almennings að þessu tiltekna svæði. Einnig er mjög góður leikvöllur stutt frá eða á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs.

Nýting á svæðinu hefur í áraraðir verið í sátt og samlyndi við íbúa nærliggjandi lóða sem hafa hoppað inn á og yfir svæðið óhindrað hingað til. Svæðið hefur verið vel hirt og er til mikillar prýði, ósnert eins og að er.

Þetta svæði er í eigu Kópavogs og ættu allir íbúar svæðisins að geta notið þess, ekki bara hestaeigendur sem hafa tekið svæðið í einkanotkun án samþykkis íbúa með aðliggjandi lóðir. Þetta fólk hefur sett upp rafmagnsgirðingar nálægt lóðmörkum annarra íbúa og hirða illa hestakít, sem gerir öðrum íbúum ókleift að nýta svæðið.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information