Endurgerð leikvallarins á Rútstúni er frábær, en krakkar virðast sammála um að þangað sárvanti fleiri rólur. Þessi eina ungbarnaróla er líka næstum ónothæf; svo óþægileg að mörg börn vilja ekki sitja í henni og svo snýr hún frá hinum leiktækjunum svo litla barnið getur ekki fylgst með hinum leika sér.
Sammála með ungbarnaróluna. Minn 11 mánaða var mjög kjánalegur í henni og ég var stanslaust að laga hann til, þennan stutta tíma sem hann entist í henni.
Með fleiri rólum nýtist þessi frábæri leikvöllur ennþá betur.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation