Undirgöng undir Nýbýlaveg við gatnamót Þverbrekku og Nýbýlavegar
Styð alltaf undirgöng yfir miklar umferðaræðar af augljósri ástæðu fyrir gangandi vegfarendur!
Börn í Hjallahverfi sem þurfa að sækja æfingar í Fagralundi þurfa að að fara yfir gatnamót Nýbýlavegar og Þverbrekku til að komast á æfingar. Aðstaðan á þessum gatnamótum er mjög léleg bæði fyrir gangandi og hjólandi. Umferðarhraðinn á Nýbýlavegi er mikill og einungis tímaspursmál hvenær alvarlegt umferðarslys verður þarna. Það er búið að keyra á mig einu sinni við þessi gatnamót þar sem ökumaður var í órétti og sagðist ekki hafa séð mig á hjólinu.
Þetta eru stórhættuleg gatnamót og ítrekað sem bílar, m.a. stórir atvinnubílar, fara þarna yfir á rauðu ljósi.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation